Fréttir af borðinu · Barþjónar · Miðbær
Hver er hraðasti barþjónn landsins? Barþjónaklúbburinn hittist á NÍNU – og „eitthvað stórt“ er á dagskrá
Barþjónaklúbbur Íslands heldur aðalfund sinn og keppnina um hraðasta barþjóninn á NÍNU við Hverfisgötu fimmtudaginn 3. desember – og lofar óvæntum tíðindum.
Dagurinn hefst kl. 16.30 á aðalfundi, þar sem farið verður yfir starf klúbbsins á árinu og rætt um það sem fram undan er.
Kl. 20.00 tekur við óvæntur dagskrárliður sem klúbburinn kynnir aðeins sem „Eitthvað stórt…“, og þá verður boðið upp á pinnamat og fordrykki á meðan birgðir endast.
Keppnin um hraðasta barþjóninn hefst kl. 20.30 með sama sniði og í fyrra: keppendur blanda kokteil, hella í skotglas og draga bjór á sem skemmstum tíma, og öll áhöld og hráefni eru á staðnum. Pláss er takmarkað og fyrstir koma, fyrstir fá; að keppni lokinni tekur við partý með tónlist frá kl. 22.30.
NÍNA er á Matur & drykkur kortinu okkar.
Heimildir: