Fréttir af borðinu · Væntanlegt · Miðbær
Gunnar Karl á Dill opnar nýjan veitingastað í gamla fangelsisgarðinum
Michelin-kokkur, bakari og hönnuður sameinast um afslappaðan stað með ítölskum blæ í nýjum skála á bak við Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.
Minjavernd hefur síðustu ár unnið að endurgerð gamla Hegningarhússins við Skólavörðustíg. Í fangelsisgarðinum á bak við húsið er nú risinn nýr veitingaskáli og er verið að innrétta hann.
Að staðnum standa Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur og stofnandi Dill, Ari Hermannsson, bakari og stofnandi 280 Bakarís, og Hafsteinn Júlíusson, hönnuður og stofnandi HAF STUDIO. Þeir sögðu í samtali við mbl.is að lengi hefði staðið til að opna veitingastað saman.
Hugmyndin er lágstemmdur og afslappaður staður með matargerð innblásinni af Ítalíu, þægilegum réttum og góðu víni, þar sem notað verður eins mikið af góðu hráefni úr nágrenninu og kostur er. Garðurinn verður líka gerður upp svo hægt verði að borða úti og þar verður svið fyrir viðburði þegar vel viðrar. Í Hegningarhúsinu sjálfu er von á hönnuðum og handverksfólki með vinnustofur, verslun og sýningarrými.
Skálinn er hannaður af Hjörleifi Stefánssyni arkitekt, sem hefur einnig stýrt endurgerð Hegningarhússins. Stefnt er að opnun á nýju ári – við fylgjumst með, og Dill er þegar á Matur & drykkur kortinu okkar.
Heimildir: