Fréttir af borðinu · Hovdenak · Nýtt
Loki Vodka og Rökkvi bætast við hlið Stuðlabergs
Alþjóðlega fagtímaritið The Spirits Business sagði frá því að Hovdenak Distillery væri komið í tvo nýja flokka: kartöfluvodka og kaffilíkjör úr kaldlöguðu kaffi.
Loki Vodka (40%) er gerður úr kartöflum og íslensku vatni. Rökkvi (20%) var þróaður með Te & Kaffi úr kaldlöguðu kaffi og er ætlaður í kokteila á borð við Espresso Martini.
Tímaritið lýsti einnig fyrstu vöru eimingarhússins, Stuðlaberg Gin, sem er eimað í lofttæmi með einiberjum, sítrus, appelsínu, kardimommu og lakkrís.
Nordic Gin House var sagt sjá um sölu nýju varanna á alþjóðlegum mörkuðum.
Heimildir: