Fréttir af borðinu · Hovdenak · Verðlaun

Rökkvi vann gull á World Liqueur Awards

Aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann kom á markað vann kaffilíkjörinn Rökkvi gull í kaffiflokki World Liqueur Awards og var valinn besti íslenski kaffilíkjörinn.

mbl.is skrifaði að afurðir hafnfirska eimingarhússins héldu áfram að sigra heiminn – fyrr sama ár hafði Stuðlaberg unnið gull í ginflokki með yfir 800 þátttakendum.

Rökkvi hafði þá fengist í Vínbúðunum um allt land frá því fyrir jól og fengið afar góðar viðtökur.

Heimildir:

Fréttir af borðinu →