Fréttir af borðinu · Hovdenak · London

Hovdenak í afmælisbók Rolls-Royce og Bentley

Hákon og Brynja eru kynnt í minningarbók sem kom út í tilefni 120 ára sögu Rolls-Royce og Bentley, gefinni út af St. James House í Bretlandi.

Útgefandinn hafði samband að fyrra bragði – eftir að einhver í hans hópi hafði smakkað vörur eimingarhússins. Hákon sagði það mikinn heiður að vera valin.

Bókin kom út 10. desember 2024 með hófi í The Great Room á Grosvenor House-hótelinu í London þar sem eigendum Rolls-Royce og Bentley var boðið og vörur valinna fyrirtækja kynntar – þar á meðal frá Hovdenak. Bókin er send til viðurkenndra umboða og eigenda um allan heim.

Heimildir:

Fréttir af borðinu →