Fréttir af borðinu · Hovdenak · Útgáfuhóf
Fullt hús þegar Þristurinn mætti á Oche
Hovdenak Distillery fagnaði því að súkkulaðilíkjörinn Þristur væri kominn í Vínbúðirnar með útgáfuhófi á Oche í Reykjavík – með smakki, skálum og pílukasti.
Hákon Freyr sagði aðsóknina hafa komið skemmtilega á óvart og að fólk hefði lengi beðið eftir alvöru súkkulaðilíkjör. International Drinks Specialists gáfu Þristinum 97 stig – hæstu einkunn sem þeir höfðu nokkru sinni gefið.
Framleitt var mest alla vikuna fram að jólum og ný vél átti að tífalda afköstin. Fleiri rjómalíkjörar gætu fylgt í kjölfarið.
Heimildir: