Fréttir af borðinu · Kokkar · Gamla höfnin

Kokkakonur: konur í matreiðslu stofna eigin félagsskap í Bryggjuhúsinu

Nýr félagsskapur kvenna sem starfa við matreiðslu, Kokkakonur, heldur stofnfund sinn í Bryggjuhúsinu við Gömlu höfnina að kvöldi 11. nóvember.

Kokkakonum er ætlað að vera vettvangur fyrir konur úr öllum greinum fagsins: starfandi kokka og matreiðslumeistara, matreiðslunema, matráða og aðrar sem sinna matreiðslutengdum störfum. Konur sem eru hættar í eldhúsinu eru líka velkomnar.

Hugmyndin er einföld og afslöppuð. Félagskonur ætla að hittast nokkrum sinnum á ári, heimsækja áhugaverða veitingastaði, borða góðan mat saman og miðla reynslu sinni – og efla þannig tengslin milli kvenna í stéttinni.

Að félaginu standa matreiðslumeistararnir Guðfinna Guðmundsdóttir, Ólöf Helga Jakobsdóttir og Guðrún Sveinsdóttir ásamt Kötlu Gunnarsdóttur, sem er sérhæfð í danskri smurbrauðsgerð. Á stofnfundinum verður rætt hvernig starfið eigi að byggjast upp, meðal annars hvort félagið geti tekið þátt í galakvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara.

Á fundinum segir Dóra Svavarsdóttir frá Slow Food-hreyfingunni á Íslandi og Alba E. H. Hough, einn þekktasti vínþjónn landsins, frá ferli sínum í veitingageiranum. Hrefna Ósk Benediktsdóttir, eigandi Bryggjuhússins, tekur á móti gestum og sýnir þeim húsið frá 1863. Bryggjuhúsið er á Matur & drykkur kortinu okkar.

Heimildir:

Fréttir af borðinu →