Fréttir af borðinu · Ungt fagfólk · Bakarar
Margrét Gunnarsdóttir frá Gulla Arnari sigraði í Kornax-nemakeppninni
Fimmtán bakaranemar tóku þátt í Kornax-nemakeppninni í Hótel- og matvælaskólanum í ár, sex komust í úrslit – og sigurinn féll Margréti Gunnarsdóttur frá Gulla Arnari í skaut.
Kornax-nemakeppnin í bakaraiðn hefur verið haldin á hverju ári síðan 1998 og er fyrir löngu orðin einn af stóru viðburðunum í íslenskri bakaraiðn – líklega hafa flestir bakarar sem útskrifast hafa frá aldamótum einhvern tíma keppt í henni. Að keppninni standa Hótel- og matvælaskólinn, Kornax og Landssamband bakarameistara.
Keppt var í tveimur lotum í skólanum í október: í forkeppninni 14.–15. október kepptu fimmtán nemar um sex sæti í úrslitum, sem fóru fram 20.–21. október. Að keppni lokinni var afrakstur keppenda til sýnis í matsal skólans.
Margrét Gunnarsdóttir frá Gulla Arnari varð í fyrsta sæti, Raluca-Naomi Cupsa frá Sandholti í öðru og Áslaug Margrét Alfreðsdóttir frá Hygge í því þriðja. Raluca-Naomi hlaut einnig verðlaun fyrir flottasta skrautstykkið og Arna Karen Gísladóttir frá Hygge var valin besti aðstoðarmaðurinn.
Í dómnefnd sátu Guðmundur Helgi Harðarson fyrir hönd Líflands, Ari Hermannsson frá 280 bakaríi og Kristín Hrund Reynisdóttir fyrir hönd Hótel- og matvælaskólans. Sandholt við Laugaveg er á Matur & drykkur kortinu okkar.
Heimildir: