Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Bakkus (2009–2012) – Til sælla minninga

Bakkus opnaði um miðjan júlí 2009 Naustamegin í gamla Gaukshúsinu og tók strax við listaliðinu sem stóð eftir heimilislaust þegar Sirkus lokaði. Staðurinn var þekktur fyrir ódýran bjór, mikið úrval erlendra vodkategunda, bíókvöld, reglulega tónleika, dans uppi á borðum og harðvítuga fótboltaspilsbar

Bakkus opnaði um miðjan júlí 2009 Naustamegin í gamla Gaukshúsinu og tók strax við listaliðinu sem stóð eftir heimilislaust þegar Sirkus lokaði. Staðurinn var þekktur fyrir ódýran bjór, mikið úrval erlendra vodkategunda, bíókvöld, reglulega tónleika, dans uppi á borðum og harðvítuga fótboltaspilsbardaga. Árið 2012 valdi Grapevine hann besta dansstað borgarinnar fyrir djarfar bókanir á plötusnúðum. Bakkus hélt líka sína eigin hliðarhátíð, B-Waves, samhliða Iceland Airwaves frá árinu 2009. Árið 2012 flutti hann í mun minna rými á Laugavegi 22 og lokaði endanlega eftir síðustu B-Waves tónleikana 5. nóvember 2012.

Í salarkynnunum við Tryggvagötu voru síðar Harlem, Húrra og þýskur bar.

Heimildir:

Fréttir af borðinu →