Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Bárubúð (Báran) (1899–1945) – Til sælla minninga
Sjómannafélagið Báran, eitt fyrsta verkalýðsfélag landsins, reisti sér samkomuhús við norðvesturhorn Tjarnarinnar árið 1899 og frá 1902 hét það Bárubúð. Húsið tók um 300 manns og varð fljótt einn helsti samkomustaður bæjarins fyrir fundi, tónleika og dansleiki; þar komu meðal annars fram kórar, Pétu
Sjómannafélagið Báran, eitt fyrsta verkalýðsfélag landsins, reisti sér samkomuhús við norðvesturhorn Tjarnarinnar árið 1899 og frá 1902 hét það Bárubúð. Húsið tók um 300 manns og varð fljótt einn helsti samkomustaður bæjarins fyrir fundi, tónleika og dansleiki; þar komu meðal annars fram kórar, Pétur Á. Jónsson óperusöngvari og hljómsveit Oscars Johansen. Á Alþingishátíðinni 1930 hljóðrituðu tæknimenn Columbia fjölda 78 snúninga platna í salnum og lofuðu hljómburðinn. Almennu skemmtanahaldi lauk eftir að KR keypti húsið 1929 og breski herinn tók það undir birgðageymslu 1940. KR fékk það aftur í niðurníðslu vorið 1945, bærinn keypti það og lét rífa um sumarið og lóðin var ætluð undir ráðhús.
Ráðhús Reykjavíkur stendur á lóðinni
Heimildir: