Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Café Amsterdam (1991–2014) – Til sælla minninga
Café Amsterdam opnaði vorið 1991 á horni Hafnarstrætis og Tryggvagötu, tveimur árum eftir að bjórinn var leyfður, og Pressan kallaði hana nýjasta innleggið í barmenningu borgarinnar – og tók fram að kráin ætti ekkert skylt við Amsterdam þrátt fyrir nafnið. Byrjunin var brösótt: strax í lok maí hafði
Café Amsterdam opnaði vorið 1991 á horni Hafnarstrætis og Tryggvagötu, tveimur árum eftir að bjórinn var leyfður, og Pressan kallaði hana nýjasta innleggið í barmenningu borgarinnar – og tók fram að kráin ætti ekkert skylt við Amsterdam þrátt fyrir nafnið. Byrjunin var brösótt: strax í lok maí hafði staðurinn skipt um eigendur í þriðja sinn. En hann fann taktinn með trúbadorum um helgar og varð með árunum ein ástsælasta búlla miðbæjarins – spilakassar innst, baksviðsherbergi í kjallaranum og svið þar sem ungar rokksveitir fengu tækifæri. Á Iceland Airwaves lifnaði hann við, troðfullur af tónleikum. Árið 2014 var gamla búllan endurnýjuð og varð Frederiksen Ale House.
Horfið – rýmið varð Frederiksen Ale House 2014 og síðar Bird (lokaði 2025)
Heimildir: