Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Dynheimar (um 1971–?) – Til sælla minninga

Hafnarstræti 73 var reist árið 1923 fyrir Akureyrarbíó og árið 1945 keypti karlakórinn Geysir húsið og nefndi það Lón, en ári síðar fékk nýstofnaður Tónlistarskóli Akureyrar þar inni. Kórinn leigði bænum húsið árið 1971 og bærinn keypti það 1975.

Hafnarstræti 73 var reist árið 1923 fyrir Akureyrarbíó og árið 1945 keypti karlakórinn Geysir húsið og nefndi það Lón, en ári síðar fékk nýstofnaður Tónlistarskóli Akureyrar þar inni. Kórinn leigði bænum húsið árið 1971 og bærinn keypti það 1975. Undir nafninu Dynheimar varð það félagsmiðstöð bæjarins og í rúm þrjátíu ár tónleikastaður þar sem upprennandi hljómsveitir spiluðu og æfðu, auk dansleikja og diskóteka. Því tímabili lauk þegar félagsmiðstöðin flutti í Rósenborg. Leikfélag Akureyrar nýtti húsið síðar undir nafninu Rýmið, og nú er þar hótel sem enn ber nafnið Dynheimar.

Hótel Akureyri Dynheimar

Heimildir:

Fréttir af borðinu →