Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Gúttó í Vestmannaeyjum (1891–1936) – Til sælla minninga

Góðtemplarahúsið á Mylnuhól var reist 1890–91 undir stjórn Sveins Jónssonar smiðs og voru keðjur grafnar niður við hornin svo að vindurinn lyfti því ekki af grunninum. Húsið stækkaði í áföngum og fékk veitingasal, forstofu og loks leiksvið með búningsherbergi.

Góðtemplarahúsið á Mylnuhól var reist 1890–91 undir stjórn Sveins Jónssonar smiðs og voru keðjur grafnar niður við hornin svo að vindurinn lyfti því ekki af grunninum. Húsið stækkaði í áföngum og fékk veitingasal, forstofu og loks leiksvið með búningsherbergi. Eyjamenn sóttu þangað dansleiki, leiksýningar, tombólur og grímuböll, og frá árinu 1915 voru þar líka sýndar kvikmyndir. Þegar rafmagn kom í bæinn 1915 fékk Gúttó sérstaka línu ásamt símstöðinni og logaði því oft ljós þar þegar önnur hús voru myrk. Norskur karlakór frá Ósló söng þar árið 1924 og lengi var sagt að reimt væri í þessu sérkennilega gamla húsi. Það var rifið árið 1936 til að rýma fyrir nýju samkomuhúsi bæjarins.

Samkomuhús Vestmannaeyja (Hvítasunnukirkjan) stendur á lóðinni

Heimildir:

Fréttir af borðinu →