Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Hafnarfjarðarbíó (1914–1988) – Til sælla minninga
Hafnarfjarðarbíó, sem bæjarbúar kölluðu Árnabíó eftir stofnandanum Árna Þorsteinssyni, hóf sýningar 6. mars 1914.
Hafnarfjarðarbíó, sem bæjarbúar kölluðu Árnabíó eftir stofnandanum Árna Þorsteinssyni, hóf sýningar 6. mars 1914. Árið 1936 keypti Árni Strandgötu 30, þar sem Hótel Drífandi hafði áður verið, og endurbyggði húsið, og þar hófust sýningar í desember 1943. Frá 1952 flutti bíóið einnig inn kvikmyndir og leigði þær öðrum kvikmyndahúsum. Eftir að Árni lést árið 1956 ráku synir hans, Níels og Kristinn, bíóið þar til þeir seldu Hafnarfjarðarbæ húsið 9. september 1988. Fljótlega var því breytt í dansstað og verslunarhúsnæði, með Nillabar á efstu hæð, og varð hluti af skemmtanalífinu við Strandgötu ásamt Mánabar og Skálanum.
Eftir 1988 varð húsið skemmtistaður og verslanir, með Nillabar á efstu hæð.
Heimildir: