Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Hótel Hekla (1924–um 1942) – Til sælla minninga

Húsið við Lækjartorg hafði frá 1889 verið verslunin Thomsens Magasín í eigu Thomsen-kaupmannanna; Guðmundur Kr. Guðmundsson keypti það árið 1923, gerði það upp og opnaði gistiheimili sem varð Hótel Hekla árið 1924.

Húsið við Lækjartorg hafði frá 1889 verið verslunin Thomsens Magasín í eigu Thomsen-kaupmannanna; Guðmundur Kr. Guðmundsson keypti það árið 1923, gerði það upp og opnaði gistiheimili sem varð Hótel Hekla árið 1924. Herbergin voru uppi en í veitingasalnum niðri var dansað um helgar og leikin síðdegistónlist, og frá 1928 til 1930 léku þar húshljómsveitir undir stjórn Poul Bernburg og Karls Matthíassonar; Bandalag íslenskra listamanna var stofnað í húsinu árið 1928. Þegar Hótel Borg opnaði skammt frá árið 1930 með lifandi tónlist hætti Hekla að mestu að ráða hljómsveitir fram undir lok fjórða áratugarins. Í stríðinu varð hótelið athvarf breskra hermanna og missti ljómann, og hótelrekstri lauk líklega vorið 1942; bærinn keypti húsið á uppboði árið 1943. Síðar bjuggu þar verkamenn sem unnu við hitaveituna og þar voru skrifstofur borgarinnar, uns húsið var rifið árið 1961.

Húsið var rifið árið 1961

Heimildir:

Fréttir af borðinu →