Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Hótel Ísland (1882–1944) – Til sælla minninga
Johan Hallberg reisti stórhýsi á horni Aðalstrætis og Austurstrætis og hóf þar hótel- og veitingarekstur árið 1882; eftir viðbyggingar fékk það nafnið Hótel Ísland og skipti nokkrum sinnum um eigendur áður en Alfreð Rosenberg eignaðist það árið 1928. Í tvo áratugi var hótelið miðstöð tónlistarlífs í
Johan Hallberg reisti stórhýsi á horni Aðalstrætis og Austurstrætis og hóf þar hótel- og veitingarekstur árið 1882; eftir viðbyggingar fékk það nafnið Hótel Ísland og skipti nokkrum sinnum um eigendur áður en Alfreð Rosenberg eignaðist það árið 1928. Í tvo áratugi var hótelið miðstöð tónlistarlífs í Reykjavík, þar sem hljómsveitir léku létta klassík síðdegis og danstónlist eða djass á kvöldin – þeirra á meðal austurríska Vínartríóið með Carl Billich, Josef Felzmann og Felix Czerny, sem ráðið var árið 1933, og spænska hljómsveitin sem kom José Riba til Íslands. Þegar Bretar hernámu landið árið 1940 voru austurrísku tónlistarmennirnir handteknir og íslenskir hljóðfæraleikarar á borð við Óskar Cortes, Þorvald Steingrímsson og Bjarna Böðvarsson tóku að mestu við. Eldur kom upp í geymslurisi aðfaranótt 3. febrúar 1944 og hótelið brann til grunna á um tveimur klukkustundum, en slökkviliðinu tókst að hindra að eldurinn bærist í timburhúsin í kring. Hóteltónlistin færðist yfir á Hótel Borg en ekki var byggt aftur á lóðinni: hún varð bílastæði sem kallað var Hallærisplanið og var árið 1993 sameinuð Ingólfstorgi.
Ingólfstorg
Heimildir: