Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Hótel Reykjavík (um 1905–1915) – Til sælla minninga
Hótel Reykjavík reis árið 1905 og var eitt stærsta timburhús bæjarins. Þar ráku Einar og Margrét Zoëga hótel og veitingasölu sem var nýtískuleg á sinni tíð, með gaslýsingu, rennandi vatni og stórum, björtum veislusal.
Hótel Reykjavík reis árið 1905 og var eitt stærsta timburhús bæjarins. Þar ráku Einar og Margrét Zoëga hótel og veitingasölu sem var nýtískuleg á sinni tíð, með gaslýsingu, rennandi vatni og stórum, björtum veislusal. Þangað sótti betra fólk bæjarins í veislur og brúðkaup, og árið 1907 hélt Alþingi Friðriki konungi VIII. veislu í húsinu. Eftir að góðtemplarar keyptu Hótel Ísland árið 1906 var þetta um tíma eini staðurinn í Reykjavík með leyfi til vínsölu, allt þar til áfengisbannið gekk í gildi 1. janúar 1915. Aðfaranótt 25. apríl 1915, rétt eftir að brúðkaupsveislu lauk, kviknaði í hótelinu og eldurinn breiddist um miðbæinn svo að þrettán hús við Austurstræti og Hafnarstræti eyðilögðust. Bruninn mikli leiddi til nýrra brunavarnareglna og þess að timburhús viku fyrir steinhúsum í miðbænum.
Steinhús við Austurstræti; bruninn breytti byggingarsögu Reykjavíkur
Heimildir: