Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Keiluhöllin Öskjuhlíð (um 1985–2015) – Til sælla minninga
Keiluhöllin var reist niðri í einni af gömlu grjótnámunum í norðanverðri Öskjuhlíð – þar sem grjót var tekið í Reykjavíkurhöfn – og fyrsta keilufélag landsins var stofnað árið 1984 í tengslum við salinn. Í þrjá áratugi var þetta staðurinn þar sem Reykvíkingar fóru í keilu, í afmælum, starfsmannagleð
Keiluhöllin var reist niðri í einni af gömlu grjótnámunum í norðanverðri Öskjuhlíð – þar sem grjót var tekið í Reykjavíkurhöfn – og fyrsta keilufélag landsins var stofnað árið 1984 í tengslum við salinn. Í þrjá áratugi var þetta staðurinn þar sem Reykvíkingar fóru í keilu, í afmælum, starfsmannagleði og deildarkeppni; um 2011 komu þangað um 240 þúsund manns á ári. Eigendurnir tilkynntu í janúar 2015 að rekstri yrði hætt 1. mars, og eftir það var Egilshöll eina keiluhöllin á höfuðborgarsvæðinu; árið 2016 tók Mjölnir við 3.000 fermetra húsinu.
Bardagaíþróttafélagið Mjölnir flutti í húsið 2016
Heimildir: