Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Klúbburinn (1960–1992) – Til sælla minninga

Klúbburinn opnaði sem veitingahús árið 1960 í þriggja hæða skrifstofuhúsi með kjallara við Borgartún 32, ríkulega innréttaður með vínstofu í austurlenskum stíl og setustofu í anda veiðikofa. Sigurbjörn Eiríksson, sem einnig rak Glaumbæ, stóð að rekstrinum og líkt og Glaumbær var Klúbburinn á nokkrum

Klúbburinn opnaði sem veitingahús árið 1960 í þriggja hæða skrifstofuhúsi með kjallara við Borgartún 32, ríkulega innréttaður með vínstofu í austurlenskum stíl og setustofu í anda veiðikofa. Sigurbjörn Eiríksson, sem einnig rak Glaumbæ, stóð að rekstrinum og líkt og Glaumbær var Klúbburinn á nokkrum hæðum þar sem hljómsveitir á borð við Hauka og Júdas léku. Eftir að Glaumbær brann í desember 1971 varð Klúbburinn vinsælasti skemmtistaður unga fólksins í bænum. Orðsporið beið hnekki um miðjan áttunda áratuginn, reksturinn dróst saman og á níunda áratugnum var stærstum hluta staðarins lokað og það sem eftir stóð nefnt Sportklúbburinn. Skömmu eftir miðnætti 3. febrúar 1992 kom upp eldur í stigagangi sem skemmdi allar þrjár hæðirnar illa og þar með var sögu staðarins lokið.

Hótel Cabin er nú rekið í Borgartúni 32

Heimildir:

Fréttir af borðinu →