Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Röðull (1944–1976) – Til sælla minninga
Röðull opnaði á gamlárskvöld 1944 með áramótadansleik knattspyrnufélagsins Fram, við Laugaveg 89 gegnt Stjörnubíói; fyrsti eigandinn var Erlendur Erlendsson og staðurinn rúmaði um 300 manns á tveimur hæðum og í kjallara. Honum var lokað þar haustið 1957 og eftir hlé opnaði hann á horni Skipholts og
Röðull opnaði á gamlárskvöld 1944 með áramótadansleik knattspyrnufélagsins Fram, við Laugaveg 89 gegnt Stjörnubíói; fyrsti eigandinn var Erlendur Erlendsson og staðurinn rúmaði um 300 manns á tveimur hæðum og í kjallara. Honum var lokað þar haustið 1957 og eftir hlé opnaði hann á horni Skipholts og Nóatúns, þar sem Helga Marteinsdóttir veitingakona, sem áður hafði rekið Vetrargarðinn í Tívolí, tók við rekstrinum sumarið 1959; hún keypti síðar staðinn ásamt tengdasyni sínum og rak hann í mörg ár, seldi miða og gætti salarins á peysufötum fram yfir sjötugt. Opið var sex kvöld í viku og þar léku hljómsveitir Árna Elfar, Magnúsar Ingimarssonar og Hrafns Pálssonar með söngvurum á borð við Hauk Morthens, Vilhjálm Vilhjálmsson og Þuríði Sigurðardóttur, og „Röðuls special“, brauðsneið með humri og rækjum, sló í gegn. Dyravörðurinn, glímukappinn Sigtryggur Sigurðsson, var svo þekktur að Þursaflokkurinn samdi um hann lagið „Sigtryggur vann“. Röðull lokaði í árslok 1976 og Radíóbúðin flutti inn, en gamlir fastagestir stofnuðu Röðulssamtökin árið 1990 til að hittast og rifja upp gamla tíma.
Í hornhúsinu við Skipholt 19 voru síðar Radíóbúðin og Ruby Tuesday; hverfiskaffihús og bókabúð (Bókasamlagið) opnaði þar árið 2021
Heimildir: