Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Sigtún (1963–1986) – Til sælla minninga

Sigmar Pétursson veitingamaður, sem áður hafði rekið Breiðfirðingabúð, tók við sal Sjálfstæðisflokksins við Austurvöll árið 1963 og gaf honum nafnið Sigtún; ásamt Glaumbæ varð hann einn vinsælasti skemmtistaður ungs fólks á landinu. Sigmar var sjálfur á staðnum flest kvöld og greip jafnvel í harmoni

Sigmar Pétursson veitingamaður, sem áður hafði rekið Breiðfirðingabúð, tók við sal Sjálfstæðisflokksins við Austurvöll árið 1963 og gaf honum nafnið Sigtún; ásamt Glaumbæ varð hann einn vinsælasti skemmtistaður ungs fólks á landinu. Sigmar var sjálfur á staðnum flest kvöld og greip jafnvel í harmonikkuna fyrir gestina í verkfalli tónlistarmanna árið 1965. Pónik og Einar, Haukur Morthens og hljómsveit, Roof Tops, Mánar, Haukar, Lónlí blú bojs, Galdrakarlar og Brimkló léku þar allir, og bingó og félagsvist voru fastir liðir. Þegar flokkurinn seldi gamla húsið byggði Sigmar nýtt Sigtún við Suðurlandsbraut 26, sem opnaði árið 1973, með sal fyrir um 1.000 gesti – þann stærsta á landinu. Þegar diskótekin tóku völdin undir lok áttunda áratugarins og á þeim níunda dvínaði eftirspurn eftir stórum sölum með lifandi tónlist; Sigtúnsnafnið var lagt niður árið 1986 og skemmtistaðurinn Útópía var um tíma rekinn í húsinu.

Salurinn við Austurvöll er Sjálfstæðissalurinn í dag; í Suðurlandsbraut 26 eru verslanir

Heimildir:

Fréttir af borðinu →