Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Silfurtunglið (1955–1975) – Til sælla minninga
Silfurtunglið opnaði árið 1955 í norðurhluta efri hæðar Austurbæjarbíós; Axel Magnússon og Sigurgeir Jónasson ráku það og nafnið var sótt í leikrit Halldórs Laxness frá 1954. Opið var sex kvöld í viku fyrir 150–200 gesti og í fyrstu léku þar danshljómsveitir – hljómsveit José Riba var fyrsta húshljó
Silfurtunglið opnaði árið 1955 í norðurhluta efri hæðar Austurbæjarbíós; Axel Magnússon og Sigurgeir Jónasson ráku það og nafnið var sótt í leikrit Halldórs Laxness frá 1954. Opið var sex kvöld í viku fyrir 150–200 gesti og í fyrstu léku þar danshljómsveitir – hljómsveit José Riba var fyrsta húshljómsveitin og síðan komu hljómsveitir Aage Lorange, Karls Jónatanssonar, Magnúsar Randrup og Finns Eydal. Á sjöunda áratugnum tóku bítlasveitir við, svo sem Fimm í fullu fjöri, Sóló, Pónik, Hljómar og Flowers, síðan hippasveitir á borð við Júdas, Mána og Óðmenn og loks ballhljómsveitir og diskótek. Staðurinn fékk vínveitingaleyfi árið 1960 og hávaðinn frá barnum olli árum saman kvörtunum nágranna í Norðurmýri. Haustið 1975 neitaði borgarráð að endurnýja leyfið og staðnum var lokað í október 1975; Snorrabær opnaði í sömu sölum í mars 1976.
Austurbæjarbíó stendur enn
Heimildir: