Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Sjálfstæðishúsið við Austurvöll (1946–1963) – Til sælla minninga

Framhúsið við Thorvaldsensstræti 2 reisti Helgi Helgason, smiður, tónskáld og frumkvöðull lúðrasveita, árið 1878 og þar var fyrst Kvennaskólinn í Reykjavík; Sjálfstæðisflokkurinn keypti húsið árið 1941 og byggði við það sal fyrir um 500 gesti, sem vígður var vorið 1946 með Lúðrasveit Reykjavíkur og

Framhúsið við Thorvaldsensstræti 2 reisti Helgi Helgason, smiður, tónskáld og frumkvöðull lúðrasveita, árið 1878 og þar var fyrst Kvennaskólinn í Reykjavík; Sjálfstæðisflokkurinn keypti húsið árið 1941 og byggði við það sal fyrir um 500 gesti, sem vígður var vorið 1946 með Lúðrasveit Reykjavíkur og Pétri Á. Jónssyni óperusöngvara. Þar var dansað öll kvöld nema „þurru“ miðvikudagana og húsið hafði vínveitingaleyfi, sem var fátítt á þeim tíma, svo mannfjöldinn fór gjarnan yfir Austurvöll þegar Hótel Borg lokaði snemma. Sjö manna hljómsveit Aage Lorange var húshljómsveit fyrstu átta árin og lék í hinum geysivinsælu kabarettum og revíum, og frá 1954 tóku við B.G. kvartett Björns R. Einarssonar og Gunnars Egilson og hljómsveitir Björns R. Einarssonar og Svavars Gests; Sveinn Ásgeirsson tók þar einnig upp útvarpsþætti. Þegar skemmtanavenjur breyttust dró úr aðsókn og eftir endurbætur árið 1962 var aðeins dansað um helgar. Árið 1963 auglýsti flokkurinn salinn til leigu og um haustið opnaði hann aftur sem Sigtún.

Endurbyggði danssalurinn opnaði á ný árið 2023 sem Sjálfstæðissalurinn

Heimildir:

Fréttir af borðinu →