Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Sjallinn Ísafirði (Uppsalir) (1939–2005) – Til sælla minninga

Húsið að Hafnarstræti 12 var byggt um 1930 og gekk á þriðja og fjórða áratugnum undir nafninu Uppsalir, fyrst sem kaffihús og síðan Hótel Uppsalir. Árið 1937 keyptu sjálfstæðisfélögin á Vestfjörðum húsið, byggðu við það stóran sal og opnuðu það vorið 1939 sem Sjálfstæðishúsið – veitingastað, danshús

Húsið að Hafnarstræti 12 var byggt um 1930 og gekk á þriðja og fjórða áratugnum undir nafninu Uppsalir, fyrst sem kaffihús og síðan Hótel Uppsalir. Árið 1937 keyptu sjálfstæðisfélögin á Vestfjörðum húsið, byggðu við það stóran sal og opnuðu það vorið 1939 sem Sjálfstæðishúsið – veitingastað, danshús og samkomustað sem síðar fékk viðurnefnið Sjallinn, að fyrirmynd hins fræga staðar á Akureyri. Árið 1979 tóku liðsmenn BG flokksins húsið á leigu og endurvöktu nafnið Uppsalir; þar léku meðal annars Utangarðsmenn, Grafík, HLH-flokkurinn og Friðryk, og 1985 opnaði þar veitingastaður með vínveitingaleyfi. Á tíunda áratugnum fylltu stærstu danshljómsveitir landsins – Sálin hans Jóns míns, Skítamórall, Írafár og Á móti sól – dansgólfið, á meðan Pizza 67 á neðri hæðinni naut mikilla vinsælda. Síðustu dansleikirnir voru haldnir haustið 2005; eftir það var húsið félagsmiðstöð ungmenna og síðar verslanir.

Félagsmiðstöð ungmenna, síðar verslanir

Heimildir:

Fréttir af borðinu →