Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Storkklúbburinn (1960–1961) – Til sælla minninga
Storkklúbburinn opnaði haustið 1960 í Herðubreið, gamla íshúsinu við Tjörnina sem Framsóknarflokkurinn hafði keypt um 1955 og tekið að leigja út, og ráku hann Þorsteinn Viggósson og Magnús Hannesson. Lúdó sextett, vinsælasta hljómsveit landsins á þeim tíma, var húshljómsveit í neðri salnum sem tók y
Storkklúbburinn opnaði haustið 1960 í Herðubreið, gamla íshúsinu við Tjörnina sem Framsóknarflokkurinn hafði keypt um 1955 og tekið að leigja út, og ráku hann Þorsteinn Viggósson og Magnús Hannesson. Lúdó sextett, vinsælasta hljómsveit landsins á þeim tíma, var húshljómsveit í neðri salnum sem tók yfir 300 manns í sæti, en hljómsveit Finns Eydal lék í minni salnum uppi fyrir um hundrað gesti. Falcon og J.J. kvintett komu þar einnig fram, eigendurnir reyndu að fá erlenda skemmtikrafta til landsins og klúbburinn hélt djasskvöld og Fegurðarsamkeppni Íslands. Aðsóknin var dræm og blaðafréttir um vínveitingar til ungmenna og að gestum væri ýtt að barnum bættu ekki úr skák; klúbburinn varð gjaldþrota haustið 1961, um ári eftir opnun. Glaumbær opnaði í sömu sölum og varð mun frægari.
Listasafn Íslands (sama hús og varð síðar Glaumbær)
Heimildir: