Fréttir af borðinu · Horfnir staðir
Tetriz (1996–um 1997) – Til sælla minninga
Tetriz opnaði sumarið 1996 í gömlu salarkynnum Duus-Húss við Fischersund og var rekinn af kvikmyndaleikstjóranum Júlíusi Kemp, sem er þekktastur fyrir gamanmyndina Pís of keik. Þetta var skemmtistaður með tíðri lifandi tónlist og kom til sögunnar einmitt þegar íslenskt hiphop var að slíta barnsskónu
Tetriz opnaði sumarið 1996 í gömlu salarkynnum Duus-Húss við Fischersund og var rekinn af kvikmyndaleikstjóranum Júlíusi Kemp, sem er þekktastur fyrir gamanmyndina Pís of keik. Þetta var skemmtistaður með tíðri lifandi tónlist og kom til sögunnar einmitt þegar íslenskt hiphop var að slíta barnsskónum, svo rappið var sérgrein hússins. Quarashi komu þar fram, sömuleiðis rappararnir sem síðar mynduðu Subterranean, og hljómsveitin Jetz hélt þar útgáfutónleika. Tetriz lifði aðeins í um eitt og hálft ár, og gamla húsið var síðar rifið.
Húsið var síðar rifið
Heimildir: