Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Tjarnarcafé / Tjarnarbúð (Oddfellowhúsið) (1943–1979) – Til sælla minninga

Oddfellowhúsið við Tjörnina, eitt fyrsta skýra dæmið um fúnkisstíl á Íslandi, teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni, var vígt 1932 með veitingasal og dansgólfi á jarðhæð. Loftleiðir tóku salinn á leigu 1943 og ráku þar Tjarnarcafé, þar sem hljómsveitir Bjarna Böðvarssonar og Gunnars Ormslev og KK sextetti

Oddfellowhúsið við Tjörnina, eitt fyrsta skýra dæmið um fúnkisstíl á Íslandi, teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni, var vígt 1932 með veitingasal og dansgólfi á jarðhæð. Loftleiðir tóku salinn á leigu 1943 og ráku þar Tjarnarcafé, þar sem hljómsveitir Bjarna Böðvarssonar og Gunnars Ormslev og KK sextettinn léku og Elly Vilhjálms var uppgötvuð í söngprufu KK sumarið 1953. Ragnar Jónsson og Jón sonur hans tóku við 1964 og nefndu staðinn Tjarnarbúð, fyrst einkum fyrir veislur og kvöld Jazzklúbbs Reykjavíkur. Frá 1968 var þar opinn skemmtistaður með hljómsveitum á borð við Eik, Icecross og Pelican, þar til almennum dansleikjum lauk 1977 og staðnum var endanlega lokað sumarið 1979; síðust á sviðið var líklega HLH flokkurinn.

Oddfellowreglan á enn húsið og starfar þar

Heimildir:

Fréttir af borðinu →