Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Tunglið (1987–1998) – Til sælla minninga

Gamla Nýja bíó, sem hafði sýnt kvikmyndir á horni Lækjargötu og Austurstrætis frá 1920 til 1987, opnaði aftur árið 1987 sem skemmtistaðurinn Lækjartunglið, sem fljótlega var stytt í Tunglið. Það varð einn heitasti staður borgarinnar og meðalstór tónleikasalur fyrir alls konar tónlist, og blómaskeiði

Gamla Nýja bíó, sem hafði sýnt kvikmyndir á horni Lækjargötu og Austurstrætis frá 1920 til 1987, opnaði aftur árið 1987 sem skemmtistaðurinn Lækjartunglið, sem fljótlega var stytt í Tunglið. Það varð einn heitasti staður borgarinnar og meðalstór tónleikasalur fyrir alls konar tónlist, og blómaskeiðið stóð frá byrjun og fram á miðjan tíunda áratuginn. Ham hélt þar kveðjutónleika sína árið 1994 og The Prodigy lék á Tunglinu 24. september 1994, sama kvöld og sveitin spilaði í Kaplakrika í Hafnarfirði. Öryggisvörður kom auga á eld í húsinu að morgni 30. júlí 1998; bruninn var einn sá mesti í sögu miðborgarinnar og húsið eyðilagðist og var rifið. Nú stendur nýtt hús á horninu þar sem m.a. Hard Rock Café og Grillmarkaðurinn eru til húsa.

Nýtt hús á horninu þar sem m.a. Hard Rock Café og Grillmarkaðurinn eru til húsa

Heimildir:

Fréttir af borðinu →