Fréttir af borðinu · Horfnir staðir

Vegamót (um 1998–um 2018) – Til sælla minninga

Vegamót, í lítilli hliðargötu við Laugaveg, var í um fimmtán ár einn stærsti og fjölsóttasti skemmtistaður miðbæjarins. Staðurinn var smart og notalegt bistró á daginn en troðfullur skemmtistaður á kvöldin.

Vegamót, í lítilli hliðargötu við Laugaveg, var í um fimmtán ár einn stærsti og fjölsóttasti skemmtistaður miðbæjarins. Staðurinn var smart og notalegt bistró á daginn en troðfullur skemmtistaður á kvöldin. Óli Már Ólason og Andri Björnsson ráku hann saman í meira en áratug. Árið 2013 „hvíldu“ þeir skemmtistaðinn og ráku Vegamót eingöngu sem veitingastað, uns staðurinn opnaði aftur sem skemmtistaður í desember 2015. Síðar á áratugnum lokaði Vegamót fyrir fullt og allt og árið 2018 opnaði brugghús og veitingastaður „þar sem Vegamót var áður til húsa“.

Brugghúsið og veitingastaðurinn Bastard Brew & Food opnaði í húsinu árið 2018.

Heimildir:

Fréttir af borðinu →