Fréttir af borðinu · Afmæli · Miðbær

Veður tíu ára og fagnar með nýju merki

Barinn Veður í miðborg Reykjavíkur hélt upp á tíu ára afmæli sitt 11. nóvember. Í tilefni dagsins kynnti staðurinn nýtt merki og bauð gestum upp á happy hour allan daginn. Frá þessu greindi Veður á Instagram.

Hjalti Karlsson hjá hönnunarstofunni KarlssonWilker í New York hannaði nýja merkið og Feltverk smíðaði það. Á mynd af framhlið staðarins sést merkið komið upp á vegginn við hlið gluggans. Þar raðast stafirnir í nafninu kringum kross, líkt og á vindhana.

Veður var opnaður á Klapparstíg í nóvember 2016, en mbl.is greindi frá opnuninni þá. Staðurinn hefur síðan fest sig í sessi meðal vín- og kokteilbara borgarinnar. Árið 2022 var hann á lista Vogue yfir bestu barina í Reykjavík.

Heimildir:

Fréttir af borðinu →