Kokteilar & kræsingar

Uppskriftir

Kokteilar og kræsingar með vörunum okkar – frá klassískum G&T að pizzu-martini.

Ertu að halda veislu?Veislureiknivélin reiknar út flöskur, tónik, klaka og skraut fyrir gestina – og hvar það fæst.Opna reiknivélina

Njótið áfengis í hófi. Uppskriftirnar eru miðaðar við einn drykk nema annað sé tekið fram.

Gin-grafin gæsabringa

Stuðlaberg Gin

Gin-grafin gæsabringa

Forréttur fyrir fjóra.

Hráefni

  • 1 gæsabringa
  • 100 g salt
  • 100 g púðursykur
  • 50 ml Stuðlaberg Gin
  • 2 msk sinnepsfræ
  • 1 msk þurrkað dill
  • 1 msk rósapipar
  • 1 tsk kóríanderfræ
  • 1 tsk einiber

Aðferð

Malaðu kryddin, saltið og sykurinn saman í matvinnsluvél og bættu gininu við svo úr verði þykkt mauk. Þurrkaðu kjötið vel, þektu það kryddmaukinu og láttu standa í ísskáp í tvo sólarhringa. Skerðu kjötið þunnt, raðaðu yfir klettasalat og dreifðu chutney yfir.

Peru- og krækiberja-chutney: 1 stór pera, 200 g krækiber, 100 g sykur, 2 msk hunang, 1 msk rauðvínsedik, ⅙ rauður chili og 50 ml vatn. Sjóddu peruna í bitum með sykri, vatni og hunangi við vægan hita þar til hún fer að maukast. Bættu við krækiberjum, smátt skornu chili og ediki og sjóddu í um 5 mínútur.

Skoða vörurnar →
HOVDENAKDISTILLERY

Hovdenak Distillery ehf. – Hafnarfjörður, Ísland
Kennitala: 581018-0530 – VSK-númer: 132880

Netfang: info@distillery.is
Sími: +354 566 6656

© 2026 Hovdenak Distillery · Vafrakökur