Ertu 20 ára eða eldri?
Því miður – síðan er aðeins fyrir 20 ára og eldri.
Njótið áfengis í hófi.
Við notum vafrakökur frá Google og Meta til að mæla umferð og bæta síðuna – aðeins ef þú samþykkir.
Kokteilar & kræsingar
Kokteilar og kræsingar með vörunum okkar – frá klassískum G&T að pizzu-martini.
Njótið áfengis í hófi. Uppskriftirnar eru miðaðar við einn drykk nema annað sé tekið fram.

Rökkvi
Kremið þarf að standa í ísskáp yfir nótt, eða í minnst fjórar klukkustundir.
Helltu upp á espresso eða sterkt kaffi og láttu það kólna. Skildu eggin að og þeyttu eggjarauðurnar með sykrinum þar til blandan er létt og ljós. Bættu mascarpone-ostinum og vanilludropunum út í og þeyttu þar til allt hefur blandast vel. Stífþeyttu eggjahvíturnar í annarri skál og blandaðu þeim varlega saman við ostablönduna með sleikju. Helltu Rökkva og kaffinu í skál eða disk með flötum botni. Veltu kexinu upp úr blöndunni í 3–4 sekúndur, hristu umframvökvann af og raðaðu því í botninn á forminu eða glösunum. Settu helminginn af kreminu yfir, raðaðu öðru lagi af kaffidrekktu kexi ofan á og endaðu á restinni af kreminu. Sigtaðu kakó yfir og láttu standa í ísskáp yfir nótt, eða í minnst fjórar klukkustundir.
Skoða vörurnar →Hovdenak Distillery ehf. – Hafnarfjörður, Ísland
Kennitala: 581018-0530 – VSK-númer: 132880
Netfang: info@distillery.is
Sími: +354 566 6656
© 2026 Hovdenak Distillery · Vafrakökur